Lausnir fyrir íslensk fyrirtæki, beint inn í Microsoft Dynamics 365 Business Central.

ALLT SEM ÍSLENSK FYRIRTÆKI ÞURFA

TORGIÐ er miðstöð sérhæfðra Business Central lausna frá Rue de Net fyrir íslensk fyrirtæki.


Allt sem þú þarft til að styðja við reksturinn, á einum stað. Engin aukakerfi, enginn tvíverknaður og engar handvirkar tengingar. Bara eitt samræmt Business Central umhverfi sem vinnur með þér.

Lausnir Rue de Net


Við höfum flokkað lausnirnar okkar í fimm meginflokka sem endurspegla hvar þær nýtast best í þínum rekstri. Þannig sérð þú fljótt hvaða lausnir það eru sem geta stutt dagleg verkefni, einfaldað ferla og sparað dýrmætan tíma.


Allar lausnirnar standa sjálfstætt og þú velur þær sem henta þínum þörfum.

Veldu eina lausn eða fleiri og byggðu upp lausnasafn sem hentar þínu fyrirtæki.


BÓKHALD

Lausnir undir Bókhaldi sameina allt sem fyrirtæki þurfa til að halda utan um fjármálin á einum stað í Business Central.

Lausnirnar vinna saman á öruggan og sjálfvirkan hátt, draga úr handavinnu, auka nákvæmni og veita betri yfirsýn yfir reksturinn.

Grunnur aðlagar Business Central að íslenskum kröfum og einfaldar samskipti og skil til Skattsins. Samþykkt veitir skýra yfirsýn yfir samþykktarferli reikninga og kostnaðar, þar sem hægt er að senda bæði reikninga og einstakar línur til samþykktar. Rafrænir reikningar sjálfvirknivæða móttöku og úrvinnslu reikninga og flýta þannig fyrir skráningu og afgreiðslu. Með Banka eru greiðslur, afstemmingar og bankaviðskipti unnin beint úr Business Central. Draga & Sleppa einfaldar vistun fylgiskjala og skjalastjórnun með því að tengja skjöl beint við færslur og viðskipti.

Saman mynda lausnirnar öflugt og samþætt fjármálaumhverfi sem sparar tíma, eykur rekjanleika og styður við betri ákvarðanatöku.

MANNAUÐUR

Lausnirnar Laun og Tímaskráning einfalda utanumhald mannauðs og launavinnslu með því að sameina ferla í Business Central. Sjálfvirk vinnsla, áreiðanleg gögn og skýr yfirsýn draga úr handavinnu og auðvelda bæði starfsfólki og stjórnendum dagleg störf.

Laun sér um launavinnslu beint í Business Central, heldur utan um launaliði, orlof og útborganir og einfaldar miðlun launaseðla. Tímaskráning gerir starfsfólki kleift að skrá tíma á einfaldan hátt á meðan stjórnendur geta yfirfarið og samþykkt skráningar, fylgst með verkefnum og tryggt að gögn berist sjálfkrafa inn í launavinnsluna.

Saman skapa lausnirnar heildstæða umgjörð fyrir tímaskráningu og launamál sem eykur skilvirkni, minnkar villuhættu og tryggir betri yfirsýn yfir starfsemina.

SALA & INNKAUP

Lausnir undir Sölu og innkaupum hjálpa fyrirtækjum að halda utan um vöruflæði, kostnað og samninga frá upphafi til enda. Með sjálfvirkum verkferlum og samþættu upplýsingaflæði milli deilda minnkar handavinna, nákvæmni eykst og ákvarðanataka verður markvissari.

Tollur einfaldar innflutningsferlið með rafrænum samskiptum og sjálfvirkri vinnslu tollgagna. Farmbréf heldur utan um sendingar og tengingar við flutningsaðila á einum stað. Kostnaðardreifing tryggir að kostnaður skili sér rétt inn í vöruverð og framlegð. Verðbreytibók einfaldar uppfærslu og stjórnun söluverða, á meðan Samningar heldur utan um samninga, skilmála og skjöl í miðlægu umhverfi.

Saman mynda lausnirnar heildstætt ferli sem styður við allt frá innkaupum og innflutningi til verðlagningar og sölu. Niðurstaðan er betri yfirsýn, aukin rekjanleiki og skilvirkari rekstur.

ÞJÓNUSTA

Auðvelda aðgengi að upplýsingum og bæta samskipti bæði innan fyrirtækisins og við viðskiptavini. Með stafrænum sjálfsafgreiðslulausnum og gervigreindarstuðningi geta notendur nálgast upplýsingar hraðar, á sínum forsendum þegar þeim hentar. Viðskiptavinavefurinn veitir öruggan aðgang að reikningum, hreyfingaryfirlitum, stöðu viðskiptaskulda og örðum mikilvægum upplýsingum. Vala nýtir gerivigreind til þess að veita skjót svör og upplýsingar beint úr Business Central. Saman stuðla þessar lausnir að betri þjónustuupplifun og aukinni skilvirkni.

TENGINGAR

Lausnir undir Tengingum og samþættingum tryggja öruggt og sjálfvirkt upplýsingaflæði milli Business Central og annarra kerfa. Með samþættum ferlum er dregið úr tvíverknaði, villuhætta minnkuð og tryggt að gögn séu alltaf uppfærð og aðgengileg þar sem þeirra er þörf.

Lausnirnar tengja meðal annars saman launa- og mannauðskerfi, innheimtu- og lánshæfismat, sjálfvirka uppfærslu viðskiptamannaupplýsinga, aðgangsstýringar fyrir veflausnir og flutning gagna yfir í gagnageymslur og greiningarkerfi.

Saman mynda þessar samþættingar öfluga heildarlausn sem eykur sjálfvirkni, bætir gæði gagna og skapar traustan grunn fyrir skilvirkan rekstur og upplýsta ákvarðanatöku.

23+

ára reynsla

100+

viðskiptavinir

20+

lausnir á Marketplace

2000+

notendur

Þróað af rue de net.

Byggt inn í Business Central.

TORGIÐ breytir Business Central í heildstæða rekstrarlausn sem tengir saman fólk, ferla og gögn.